Kvöldið

Ég mætti snemma á Stúdentakjallarann í kvöld. Töluvert af fólki var þegar þarna. Ég einbeitti mér að því að taka lélegar myndir af fólkinu. Herra Muzak mætti snemma en restin af hljómsveitinni mætti seinna, þeir voru stórskemmtilegir en ekki skemmir fyrir að Hraun eru líka alvarlegir tónlistarmenn líka. Hápunkturinn á þeirra dagskrá var þegar Rebellinn var spilaður, allir sáu okkur dansa. Flott.

Ég var orðinn mjög stressaður þegar kom að úrslitunum en um leið og prósentan hjá Vöku var lesin upp þá var þetta nokkuð ljóst. Fagnaðarlætin voru ægileg þegar skipting manna var komin fram, 4-4-1. Við töpuðum reyndar 3% til Alþýðulistans en það kom ekki að sök. Nú höfum við tækifæri til að breyta einhverju.

Ég faðmaði alla og kyssti marga. Ég söng að lokum eitt erindi úr We are the Champions með hjálp Ásgeirs. Við Annas komum okkur síðan heim og við vorum glaðir, ég hefði samt viljað sjá hann komast að.