Queen og páfinn

Í gær voru tónleikar með Queen + Paul Rodgers í Róm. Þeir sem halda utan um jarðarfararundirbúning páfans reyndu að fá tónleikunum aflýst en sem betur fer var ekki hlustað á það. Persónulega skil ég ekki hvernig það ætti að angra aðdáendur páfans þó aðdáendur Queen fái að skemmta sér eina kvöldstund. Dauði páfans er líka augljóslega enginn harmleikur, það vissu allir að hann færi að deyja og flestir voru hissa á hve lengi hann entist.

Mér þykir líka merkilegra að Queen sé á tónleikaferð heldur en að páfinn skyldi loksins hafa dáið. Ef ég hefði verið spurður fyrir ári hvort mér þætti líklegra að gerðist þá hefði ég veðjað á dauða páfa.

Ímyndið ykkur yfirganginn að ætla að stoppa tónleika þar sem eru ótal manns sem kannski ferðast langar leiðir til að komast. Ekki hefði ég verið glaður ef eitthvað slíkt hefði stoppað Brixton tónleikana.

Í tengdum fréttum þá má sjá mynd af japönsku Freddie eftirhermunni sem var í Brixton í Fréttablaðinu í dag.