Það er barasta stórfyndið að sjá forsíðurnar á annars vegar Vökublaðinu og hins vegar Röskvublaðinu. Þarna er verið að lýsa nákvæmlega því sama en á gjörólíkan hátt. Það sama gerðist við stjórnarskipti í Stúdentaráði. Þegar maður skoðaði tilkynningar Vöku og Röskvu í því máli þá sást að þrátt fyrir að R&V hefðu tekið sig saman þarna þá var túlkun þeirra á atburðarásinni töluvert annar.
