Brixton 28-3-05

Jæja, í gær kom loksins góð upptaka á netið. Reyndar bara áhorfendaupptaka en það er nóg. Það er ákaflega gaman að eiga upptöku af tónleikum sem maður sjálfur var á. Spjallið milli laga er eiginlega jafn mikilvægt og tónlistin. Það kom mér samt á óvart að þetta tók svona langan tíma, ég held nefnilega að það hafi ótal margir verið að taka upp.

Það var búið að tilkynna fyrir túrinn að það yrðu upptökur settar af netið en síðan þegar á hólminn var komið þá var þá bara um að ræða nokkur lög af hverjum tónleikum og ekkert frá Brixton. Bömmer, þarna er eitthvað markaðsfólk sem misskilur algerlega tilganginn með þessu. Gæðin á því sem þeir hafa sett á netið eru reyndar með góð, greinilega ekki bara hrátt úr hljóðborðinu. Það er síðan hægt að kaupa skrifanlegan disk með lógói til að setja lögin á, kannski ég geri það til að láta í hillu.

Þetta var annars í fyrsta skiptið sem ég dánlóda einhverju á flac-formi. Það form á að vera mikið betra en mp3 en ég hefði áhuga á að sjá tvíblinda tilraun þar sem einhver á að greina milli vbr mp3 fæls (einsog ég nota) og flac. Held reyndar að munurinn á 128 mp3 fæl og flac sé töluverður.