Allt horfið…næstum

Jæja, harði diskurinn er víst ónýtur og með honum fór fullt af drasli. Reyndar fátt mikilvægt en samt. Ég á afrit af næstum öllum þeim myndum sem voru þarna inni. Engin ókláruð skólaverkefni glötuð en nokkrir minnispunktar. Einhverjar ókláraðar Vantrúargreinar en þó ekki neitt merkilegt. Það er vont að tapa póstinum. Reyndar er flest sem ég er ennþá að vinna með ennþá á vefpóstinum. Aðallega bara hlutir sem hefði verið gaman að eiga. Pirrandi helvíti.

Ég er vanur að taka afrit af öllu (og hreinsa um leið út) í maí/júní, ágúst og desember/janúar. Það var semsagt efni frá janúar til dagsins í dag þarna. Þyrfti að koma mér upp mánaðarlegu afritunarritúali.

Nýr harði diskur kemur kannski fyrir helgi. Voðalega ömurlegt. Ég verð að ná í skjá og tengja við stóru tölvuna.