Í djásnin

Fór í körfubolta með Ásgeiri, Starra, Árna Pétri og Eyþóri. Engir snilldartaktar þar. Eyþór frændi náði að negla á viðkvæmasta stað á mér eftir að ég sló boltann úr höndum hans, það var sárt en kalda veðrið bjargaði mér að mestu leyti. Ég fór þegar mér þótti þetta orðið of blautt en karlmennskuröfl hélt hinum áfram á vellinum.