Tollurinn með allt á hreinu

Tollstjórinn með góðar upplýsingar fyrir þá sem eru að versla á netinu:

Athugið að í sumar vörur er bannað að flytja til landsins samkvæmt íslenskum lögum þótt hægt sé að panta þær á netinu. Þetta á til dæmis við um dýr og plöntur, lyf til lækninga, eiturlyf og vopn.

Feitletrun er mín. Hvað ætli þetta stoppi marga dópinnflytjendur? Ætli þeir séu almennt að leita sér upplýsinga á heimasíðu tollsins? „Ó, má þetta ekki?“