Ég var að lesa gamlar færslur hjá sjálfum mér. Rakst á þessa frá febrúar 2003:
Eygló veit ekki hvað á að kjósa í Háskólanum, enginn munur er á málefnum, þá er bara fólk eftir. Er spurningin ekki: Hverjum vill maður hjálpa með CV-ið sitt? Annars er herra Muzak á nýja listanum sem gefur honum plús.
Held að Eygló hafi líka kosið Háskólalistann eins og ég mælti þarna með án þess að vita nokkuð um hann.
