Merkisdagar á mannsævi

Ég held áfram að skoða gamlar færslur sem ég skrifaði áður en ég flutti á Kaninkuna, þessi er augljóslega stórmerkilegur áfangi í lífi mínu:

04/04/02

Það var vitlaus dagsetning á færslunni hér að ofan, lagaði það. Ég var hjá Ásgeiri og sá hvað hann kallaði heimasíðuna mína í bókarmerkjunum sínum, ég ákvað að nota það bara sjálfur þannig að heimasíðan mín, vefurinn minn, heitir núna Gneistinn. Nú fer ég líklega og hanna glæsilegt lógó. Þetta er alveg sæmilega hallærislegur titill á síðuna.

Óli (Gneistinn)

Undirtitillinn var hins vegar alltaf Dagbók og handahófskennt þvaður, ætti að bæta því aftur við.