Út í rass**** með laufabrauð

Ég las eitt stykki bók núna áðan í baðinu. Það er merkilega þægilegt að lesa í baði.

Eftir vinnu í kvöld þá fór ég rúnt með laufabrauð. Reyndar var ég að villast um Vesturbæinn þegar Sverrir hringdi í mig og bað um greiða. Við fundum hvorn annan og ég reddaði eyrnalokkunum. Síðan tók Sverrir sig til og kenndi mér að rata um hverfið, fann millagötuna hennar Sigrúnar, og skutlaði síðan leiðsögumanninum heim. Ég fór þá reyndar næst með laufabrauð til Hildar og endaði í dáltlu spjalli. Hildur staðfesti að laufabrauðið mitt væri sérstaklega gott. Síðan skutlaðist ég með laufabrauð til Sigrúnar sem var þá nýkomin úr einhverju úthverfi Reykjavíkur. Hún stefndi á að læra fram á nótt og ég truflaði hana því ekki lengi. Heppin með nýju íbúðina sýndist mér.

Þetta tal um Vesturbæinn minnir mig á atvik frá því í gær. Ég var að rölta úr Mjóddinni með pakka sem ég hafði þá sótt (The Amazing Meeting 3 á dvd, spennandi stöff). Komu þá nokkrar stelpur, 11-13 ára cirkabát (ég er lélegur í aldursgreiningu), og spurði ein þeirra mig hvar ég ynni því henni fannst ég eitthvað kunnuglegur. Ég sagði henni á hvar ég starfaði og þá fékk ég nokkrar tilgátur um hvar þessi vinnustaður væri. Kringlan? Hamraborg? Ég leiðrétti stúlkurnar og þá sögðu þær að vinnustaður minn væri út í rassgati. Breiðholtsbörnin er svo óheft en þetta er að sjálfssögðu rétt hjá þeim.

Mig grunar að málfar og stafsetning sé kannski ekki til fyrirmyndar í þessum pistli en lokaorð hans eru skrifuð klukkan 3:40 og ég tel það gilda afsökun.