Þvottavélaviðgerð

Ég eyddi núna þremur klukkutímum í að rífa í sundur þvottavél og að setja hana aftur saman. Fyrriparturinn var frekar auðveldur. Hver er sá hlutur sem oftast festast í þvottavélum? Flestir ættu að vita þetta. Ég fjarlægði aðskotahlutinn og setti vélina aftur saman. Ég vona að það hafi tekist. Það var erfitt. Núna er ég að rúlla einni vél til að sjá hvort að þetta sé í lagi. Ekkert lekur einsog er en hver veit hvernig fer þegar vélin fer að vinda. Ég er þreyttur núna.