Idolið

Ég ákvað á síðustu stundu að fara frekar á Idolkvöld hjá Þjóðbrók frekar en á Nasa. Ég er voðalegur svikari við Telmu. Stúlkan okkar lenti í öðru sæti sem var mjög gott en mig grunar að dómnefndin hafi haft of mikil áhrif á áhorfendur í þetta sinn. Allavega til hamingju Telma, þetta var flott.

Idolkvöldið var gott. Skemmtum okkur vel og við Íris yfirgáfum Rósu loks rétt fyrir klukkan þrjú. Við ræddum ýmislegt, þar á meðal hve margt er líkt með Borgarnesi og Argentínu. Eggert barði mig reyndar fyrir það komment.