Það var Þorrablót í gær. Mjög gaman. Ég lét skemmda matinn vera. Ég flutti Minni kvenna sem gekk bara vel, ég var ekki klúr eins og hún Ingibjörg sem talaði á móti mér. Það var samt fyndið. Spjallaði við marga. Hringdi í Jakob og hann á inni afsökunarbeiðni og bjór hjá mér. Sigrún vildi að ég hjálpaði við dansinn, ég veit ekki hvernig henni datt það í hug.
Eygló náði síðan skemmtilegri mynd af mér og Terry: