Ég get ekki gert að því að ég fyllist gríðarlegri kátínu þegar ég les fréttir af samstarfi Vöku og Röskvu í Stúdentaráði. Flissa einsog smástelpa. Við hömruðum á því í kosningabaráttunni að það væri nær enginn málefnaágreiningur milli Röskvu og Vöku sem gæti komið í veg fyrir samstarf þeirra og þau hafa greinilega verið að hlusta.