Í gúgglun minni á Slæðingi rakst ég á að Anna Jensdóttir hefur vitnað í fyrsta árganginn í grein um Tón- og myndsafn Þjóðarbókhlöðunnar. Af skemmtilegri tilviljun var Anna ein af þeim fyrstu sem fékk eintak af nýja blaðinu núna í vikunni (fyrst á eftir þjóðfræðinemum og greinahöfundum). Sú sem fékk næsta eintak á undan Önnu var Rósa á Árnastofnun sem skrifaði einmitt greinina sem Anna hafði vitnað í.
Sigrún kom til landsins í gær og ég skutlaði nokkrum eintökum af Slæðingi til hennar í dag. Hún fann strax fullt af villum sem enginn annar hafði tekið eftir (aðallega varðandi uppsetninguna og aðallega eitthvað sem enginn annar myndi telja galla).