Dagurinn skín svo fagurlega…

Það er ekki skemmtilegt að keyra í níu klukkutíma á einum degi en þess þarf stundum.  Til að gleðja mig þá var landið hins vegar voðalega fallegt í kvöld.  Tónlistin gerði þetta líka betra.  Þegar ég var kominn yfir Borgarfjarðarbrúnna þá varð ég að stoppa og taka mynd af sólinni.  Merkilega góð miðað við að ég notaði myndavélasímann.

Nú er það að fara í sturta og síðan sofa ef líkaminn er ekki of illa farinn.