Ágætur og uppbyggilegur morgun. Fór í tíma sem Hjalti skrópaði í. Fékk reyndar lægri einkunn fyrir verkefni tvö heldur en fyrir verkefni eitt. Bögg. Fór síðan til Terry að spjalla. Minntist á þær hugmyndir og þau plön sem ég hef fyrir ritgerðina. Hann tók öllu vel. Fékk líka samþykki hans fyrir að láta vaða með Nýfundnaland þannig að ég fór upp á Alþjóðaskrifstofu til að fá nánari upplýsingar. Ég er semsagt kominn aftur af stað í það ferli og það lítur bara vel út. Jibbý.
Næsta stopp var Bókhlaðan til að taka bók sem Terry mælti með varðandi shamanisma-ritgerðina mína. Fann hana og stökk í næsta strætó heim. Náði að hoppa útúr S3 niðrí Mjódd, versla í Nettó og ná S4 á um það bil þremur mínútum. Það er ekki lélegur árangur. Reyndar þurfti ég að hlaupa upp vagninn.