Í morgun fékk ég lykla að nýjum íverustað. Þetta er lítil en notaleg stúdíóíbúð í Vesturbænum. Ég geri ráð fyrir að flytja ekki síðar en á fimmtudag. Ég giska að þetta verði uppúr hádegi þannig að ef einhverjir eru lausir og viljugir til að flytja með mér þá látið mig vita. Þetta er ekkert sérstaklega mikið, þannig séð. Allavega miðað við síðustu flutninga.