Egill Helgason eyðir eigin kommenti (og svari mínu)

Uss, um leið og ég var búinn að skrifa síðustu færslu þá kíkti ég aftur á bloggið hans Egils og sá að tvö síðustu kommentin voru horfin. Það voru komin tvö komment þarna, frá mér og öðru og þá kom Egill með athugasemd sem var eitthvað á þá leið að þetta væri eins og að ýta á hnapp og leiðinlegu trúleysingjarnir birtust. Ég svaraði með kommenti sem bar titilinn Rökvillu nr. 2 (vísun í hefð var rökvilla nr. 1). Þar sagði ég að þarna væri ad hominem rökvilla hjá Agli, í stað þess að svara rökum tæki hann og réðist á persónu andstæðinga sinna. Ég spurði síðan hvaða rökvillu Egill kæmi næst með í flótta sínum frá heiðarlegum rökræðum. Þessi tvö komment fengu að hverfa.

Uppfært:
Það er við hæfi að benda á bráðskemmtilega rökvillugreiningu sem Vésteinn skrifaði fyrir nokkrum misserum: Athyglisverð köpuryrði frá Agli Helgasyni