Íþróttameiðsli nr. 3

Ég fór í bandí áðan en gleymdi nýju fínu bandíkylfunni minni.  Verð að fara með hana og geyma niðurfrá.  Það fór sem fyrr þannig að þannig að ég slasaðist af völdum Háskólakórsins.  Í þetta skipti fékk ég bolta beint á munninn.  Fólk gæti haldið að munnurinn minn hafi verið nær gólfinu en venjulega.  Það er ekki rétt.  Ég stóð beinn í baki og náði boltinn því að komast upp í cirka 180 centimetra hæð.  Þetta var djöfull vont enda boltinn á mikilli ferð.  Alltaf gaman að láta blóðga sig í íþróttunum.