Umsókn mín til Cork er komin af stað, reyndar þá þarf ég væntanlega að bæta við fleiri pappírum þegar á líður en flest liggur þar mjög beint við. Mjög feginn að geta hugsað um önnur verkefni.
Ég fór í bandí áðan og er frekar uppgefinn eftir það. Fornleifafræðingar mættu til að fylla í hópinn þannig að við höfðum góð lið. Síðan var enginn í næsta tíma þannig að einhverjum datt í hug að spila fótbolta. Ég er ekki aðdáandi þeirrar íþróttar en við spiluðum samt í nærri hálftíma. Uppgefinn já.