Fyrsti skóladagurinn og fyrsti (eini) Íslendingurinn í Cork

Fyrsti dagur í alvöru skóla í dag. Ég mætti snemma, alveg klukkan 10. Fékk þá að heyra að tíminn byrjaði ekki fyrren tvö. Ég ákvað að fara ekki heim heldur hanga á bókasafninu. Ég gerðist líka svo óvenju próduktívur að ég las bók. Saying isn’t believing sem er um þjóðfræði frönskumælandi Nýfundlendinga. Hitti Steffi, Fabian og Jakobo á safninu.  Ég kláraði síðan bókina.

Tíminn var ágætur. Við spjölluðum og hlustuðum síðan líka á þátt frá írska útvarpinu. Þar talaði góðvinur Íslendinga með sterkum sænskum hreim.

Eftir tímann fór ég að hitta Antoniu sem var með ferðahandbókina mína. Við ákváðum að fara að borða saman á midweek madness á Abrakedabra. Hamborgari, franskar og gos fyrir tæpar fjórar Evrur. Á leiðinni sá ég Íslending, hana Steinunni þjóðfræðing. Ég kallaði til hennar og við spjölluðum smá. Fyrsta skipti sem ég tala íslensku við einhvern annan en Eygló (eða, ég hef talað íslensku án þess að aðrir skilji hvað ég er að segja). Mér er boðið í partí til Steinunnar í kvöld.

Við Antonia ákváðum að ég myndi elda heima hjá henni á föstudaginn. Ég fór í Tesco til að sjá hvort að þar væri til hráefni í mexíkanskan kjúklingarétt en svo var ekki. Ostadýfan var ekki til þar né í SuperValu. Kannski í einhverri betri verslun.