Köld skoðunarferð

Um daginn vaknaði sú hugmynd að fara í skoðunarferð um Cork í svona tveggja hæða strætó. Á endanum urðum það samt bara við Antonia (Marianne sveik okkur á síðustu stundu). Ferðin átti að taka 75 mínútur en varð um 110 mínútur. Mestur tími fór í að bíða eftir að umferðin færðist áfram. Við sátum á efri hæðinni og það að sitja kyrr út í svona langan tíma olli því að okkur varð töluvert kalt. En þetta var nú ekki algjörlega glatað. Maður sá borgina frá öðrum sjónarhornum en venjulega og lærði ýmislegt nýtt.