Akureyri Írlands

Hef ég minnst á það að mér þykir Cork bera mikinn keim af því að vera Akureyri Írlands.

Cork búar þykja góðir með sig (sem er árangur í landi þar sem allir þykja góðir með sig). Cork er stærst utan höfuðborgarinnar eins og Akureyri (nei, Kópavogur og Hafnarfjörður eru ekki utan höfuðborgarinnar og Reykjanesbær eru ekki alvöru bær). Síðan eru þessar götur hérna í brekkunni frekar mikið í ætt við götur á Brekkunni á Akureyri. Á skiptir bæði Cork og Akureyri.

Annars var Lee spegilslétt og falleg í kvöld. Sá eftir því að hafa skilið myndavélina eftir heima.