Öfgamúslimar og höfundaréttur

Vilhjálmur („allir eru gyðingahatarar“) Örn notaði um helgina mynd af Vésteini félaga mínum í Jesúgervi í óleyfi. Þetta angraði Véstein raunar ekki neitt nema vegna þess að þarna er níðst á höfundarétti ljósmyndarans sem mér skilst að hafi lagt töluverða vinnu í verkið. Vésteinn lét vininn vita og vinurinn kvartaði til Vilhjálms. Vilhjálmur, sem hefur reyndar ekki ennþá eytt út myndinni,  tók þetta greinilega mjög nærri sér og skrifar færslu um þetta sem hann lýkur með orðunum:

Voða er nú lítill munur á Vantrúarfólki og öfgamúslímum.

Nú veit ég ekki hvert viðhorf öfgamúslima almennt til höfundaréttar er en mig grunar að það verði seint talið aðalatriðið í öfgum þeirra. Hve veruleikafirrtur er þessi einstaklingur eiginlega?
Nú hefur Vilhjálmur víst skrifað einhverjar bækur. Þætti Vilhjálmi allt í lagi að ég myndi birta bækur hans á netinu og fjarlægði nafn hans úr þeim svo lengi sem ég fengi enga peninga út úr því?
Hvað er svona erfitt að skilja varðandi höfundarétt? Maður einfaldlega virðir það að einhver hefur lagt vinnu í að skapa verk.