Í gær þurfti ég að taka ákvörðun um það hvort ég færi í badminton svona nýstiginn upp úr veikindum. Ég ákvað að láta vaða og það gekk ágætlega þó við höfum nú ekki enst út allar 50 mínúturnar (venjulega spilum við lengur ef það er laus völlur). Í dag er ég hins vegar að efast um ákvörðun mína. Öxlin er ákaflega aum eftir þetta sprell.