Ég var snjall og forpantaði síðustu Absolute Sandman bókina til að fá hana á besta mögulega verðið. Þá kostaði dollarinn 79 krónur. Ég var búinn að gleyma þessu í dag þegar ég fékk tilkynningu um að sendingin væri farin af stað. Dollarinn kostar í dag 131 krónu hjá Mastercard. Ekki alveg jafn góður díll og ég var að vonast eftir.
