Ég held að Glúbbi hafi verið að setja eitthvað met, það er að vísu líklegt að einhver hafi skrifað lengri bloggfærslu en enginn hefur skrifað svona langa færslu sem ég hef nennt að lesa í heild sinni. Þetta er kannski ekki skrýtið miðað við hvað náunginn getur skrifað um tilbreytingaleysi vinnu sinnar (hluti af þessu tilbreytingaleysi er náttúrulega hið daglega ólán).
Glúbbi er einn skemmtilegasti bloggarinn í dag, sýnir vel að það skiptir engu máli um hvað maður skrifar heldur hvernig maður skrifar.