Það er bara hálfvitaskapur að láta úrslitin á Gettu Betur inn á netið áður en þátturinn er sýndur, einfaldlega hálfvitaskapur. Það að ætla að fela úrslitin með einhverjum bilum er ekki til neins ef þú áttar þig ekki á því að tölvuskjáir og vafrar sýna ekki allir nákvæmlega sömu útgáfur af vefsíðum, sem sagt að það sem sést ekki hjá þér sést kannski hjá öðrum.