Ég tók og hreinsaði lyklaborðið mitt og horfði um leið á West Wing. Það er gefandi að hreinsa lyklaborðið, ég geri það reglulega og í þetta skipti tók ég myndi (fáið að sjá þær seinna).
Sumum finnst ég eyða of miklu plássi á þessari síðu í umfjöllun um ómerkilega hluti. Sumum dettur jafnvel í hug að kvarta yfir því, þeir mega hoppa upp í rassgatið á sér.
Er nokkur hlutur ómerkilegur? Er ekki allt sérstakt? Og ef einhver hlutur er ekki sérstakur, er hann þá ekki sérstakur fyrir það?
Húrra. Myndir af Gneistanum að hreinsa lyklaborðið sitt. Ég get ekki beðið. (sagði herramaðurinn um leið og hann hoppaði upp í rassgatið á sér)
Það er nú óþarfi að biðja hvern einn og einasta lesanda síðunnar að hoppa upp í rassgatið á sér