Aðferðafræði undarlegheit

Það er afar undarlegt að vera í Aðferðafræði (sem ég get ekki almennilega útskýrt hvað er) tímum í stóra salnum í Háskólabíó með nokkur hundruð manns. Kennararnir eru í móðu einhvers staðar þarna frammi og ég myndi ekki þekkja þá úti á götu, Nils sagði mér að sú sem kenndi tölfræðihlutann væri hot en ég hef ekki ennþá sannreynt það. Ég veit að það er fullt af fólki með mér í þessum tímum sem ég þekki en ég rekst ekki á nema nokkra, Billi fyrrverandi bekkjarfélagi situr rétt hjá mér yfirleitt.

Að sjá hvað fólk er að dunda sér á meðan það á að læra er skemmtilegt. Í síðasta tíma sátu tveir fyrir framan mig með fartölvur, annar var að taka inn efni á DC++ og hinn á Kazaa. Reyndar tók Kazaa náunginn upp á því að skoða blogg í tímanum, sá að hann fór meðal annars að skoða Stefán Einar. Framar í salnum sat einhver með krakkann sinn við hlið sér. Krakkinn var með fartölvu í fanginu og var að horfa á einhverja teiknimynd.

Það er undarlegt þegar nemendur spyrja um eitthvað, maður heyrir aldrei spurningarnar nema að kennarinn endurtaki þær en það er oft sem kennarinn sjálfur heyrir ekki spurninguna. Líka er gott að spyrja heimskulegra spurninga og gera sig að fífli fyrir framan mjög stóran hluta félagsvísindadeildar.

Kennarinn átti snilldartakta í síðasta tíma einsog Eygló benti á.

Kennarinn eyddi dágóðum tíma í að útskýra formúlu fyrir meðalfrávik meðaltals. Þegar hún var búin að útskýra þetta allt vel og vandlega sagði hún: „Útkoman er því alltaf núll, svo að formúlan hefur í raun ekkert notagildi“. Algjört brill!!!
Ég klappaði meiraðsegja fyrir þessu.

Fórnfýsi U2

Var að horfa á heimildarmynd um U2 núna rétt áðan. Það var verið að fjalla um ZooTV tímabilið þeirra og mikið gert úr því að þeir skyldu ekki græða á þeim tónleikaferðum. U2 er svo fórnfús og indæl hljómsveit. Queen græddi peninga á The Magic Tour árið 1986 en ekki neinni annarri tónleikaferð.

Andrés Magnússon og djöflalestin

Andrés Magnússon tekur sig til og gagnrýnir harðlega þá ákvörðun R-listamanna að fara og skoða einhverjar lestir hjá sveitarfélögum sem eru af svipaðri stærð og Reykjavík. Hann segir að þetta sé einhver lestaárátta hjá R-listamönnum sem virðast bara vera ofvaxin börn í hans huga. Hann tekur sig líka til og rifjar upp mál sem var á dagskrá fyrir frekar stuttu síðan um hraðlest milli Reykjavíkur og Keflavíkur og segir að slíkt gæti aldrei borgað sig.

Andrés Magnússon skilur ekki almenningssamgöngur, þær eiga ekki að borga sig einsog frjálshyggjumenn vilja í beinhörðum peningum. Almenningssamgöngur eiga að létta á umferð, veita fólki raunverulegan valkost og vera umhverfisvænar.

Andrés Magnússon skilur ekki herferð R-listans gegn einkabílnum þó einkabílar séu meðal aðalvandamála í skipulagi borgarinnar. Endalaust er kvartað yfir bílastæðaleysi, gatnaframkvæmdir kosta óhemju pening, umferðin á álagstímum er hræðileg. Það væri yndislegt að minnka notkun á einkabílum.

Andrés bendir á að strætisvagnar fari um hálftómir og hallarekstur sé á þeim. Ólíkt Andrési þá hef ég lausn á því máli, lækkum fargjöld og bætum þjónustu. Ég veit að stór hluti ástæðunnar fyrir að margir sem ég þekki nota ekki strætó er vegna þess að það er alltof dýrt. Ég held að fargjaldalækkun myndi í raun auka hagnaðinn og þá væri hægt að auka þjónustu sem síðan myndi auka notkun. Undanfarin ár hefur þróunin einmitt verið í akúrat öfuga átt við það sem ég var að lýsa, fargjöld hafa hækkað, farþegum fækkað og þjónusta minnkað. Þetta hefur ekki verið eðlileg þróun og það er nauðsynlegt að snúa henni við.

Þessi grein Andrésar er ómálefnaleg að mörgu leyti, á alls ekki heima á vefmiðli með sjálfsvirðingu (meira í átt við bloggfærslu :). Yfir greininni hefur Andrés látið mynd af einhverri djöflalest og í huga mér þá sé ég hann einmitt fyrir mér sem lestarstjóra þessarar lestar að keyra Pressuna beina leið til helvítis.