Svínað á Ólaf

Davíð og félagar svínuðu vel og vandlega á Ólaf Ragnar í gær, hann fékk ekkert að vita af ríkisráðsfundi. Það er náttúrulega ljóst að allt þetta mál er svínslegt, þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð hjá Dabba og félögum. Ég giska að Davíð hafi bara ekki viljað hafa Ólaf með á þessari mynd, Hannes Hafstein er í uppáhaldi hjá Davíð og Ólafur er það ekki. Kannski að Davíð hafi fundist Ólafur gera lítið úr Hannesi með því að ætla að vera í útlöndum.

Halldór Blöndal segir að Ólafur hafi átt að vita að fundurinn yrði haldinn, fullkomlega eðlileg vinnubrögð að tala ekki við Ólaf eða forsetaskrifstofu. Ef það var svona eðlilegt að halda þennan fund þá spyr ég hvers vegna það var ekki boðað til hans með meira en sólahringsfyrirvara?

Afmælisveisla

Ég á afmæli á miðvikudag, verð 25 ára, og ég mun halda upp á afmælið um helgina, laugardaginn 7. febrúar til að vera nákvæmur á því. Ég hef ekki haldið upp á afmælið mitt í svona tíu ár. Ég geri ráð fyrir að kökur verði skornar um klukkan 20:00 og því væri gott fyrir fólk að vera mætt þá. Klukkan 21:00 verður kveikt á Popppunkti. Þegar Popppunkti lýkur verður eitthvað spil spilað, hugsanlega Party & co. Veislan mun líklega ekki enda á því að fara eitthvað út heldur er vonin að þetta endist sem lengst heima hjá mér.

Nú hef ég reynt að hafa samband við einhverja til að bjóða þeim en það gæti verið að ég hafi gleymt einhverjum (til dæmis veit ég að ég hef gleymt Danna). Ef þig langar að koma þá er þér það velkomið, hvort sem þú vilt bara líta snöggt inn eða vera fram á nótt. Ég bíð meðal annars það fólk sem þekkir mig aðallega í gegnum blogg velkomið. Ég myndi helst vilja að fólk sem langar að koma sendi mér tölvupóst (olis – hjá – hi.is), sms eða noti jafnvel síma. Fólk er semsagt velkomið en ég vill vita hve mikið gos ég á að kaupa og hve mikið ég á að baka.

Einsog ég segi þá verða einhverjar kökur í boði, snakk og gos, ef fólk vill hafa eitthvað áfengi með sér þá er það allt í lagi en ég hvet ekki til þess. Þetta verður augljóslega óendanlegt nördapartí enda er ég nörd.

Gleymdi einu! Gjafalisti er hérna! Ég bæti kannski einhverju við hann í dag. Það er samt ekki nauðsynlegt að allir gefi mér gjafir… Gefmér!

Lærið íslensk dónaorð

Ég var að rekast á áhugaverða síðu, hún inniheldur íslensk dónaorð og enskar þýðingar á þeim. Ég get ekki sagt að mér finnist þessi síða vera sérstaklega vel heppnuð, þeir sem hafa lagt til efni á þessa síðu eru greinilega ekkert sérstaklega góðir í þessu. Dæmi um lélegheit þá er „son of a bitch“ sagt vera ígildi „horu sonur“.

Þess má geta að ég fann þess síðu þegar ég var að leita að orðinu klám á netinu, reyndar vegna þess að ég er hissa hvað fólk kemur sífellt inn á síðuna mína í leit að klámi.