Alveg miður mín

Ég er alveg miður mín, afskaplega miður mín yfir því að hafa haft hann út í þetta. Hefðum bara átt að segja flatt nei af því hann var hikandi í stað þess að bæta þessu „ef“ inn í en ég bjóst ekki við þessu. Innilegar samúðarkveðjur. Ég öfunda samt hann eiginlega af potinu frá guði, vona að hann hafi húmor fyrir því…allavega einhvern daginn.

Greinin er allavega frábær þó umbúðirnar hefðu getað verið virðulegri.

Höfundarréttur og bókasöfn V

Þegar ný höfundarréttarlög voru sett í Danmörku nýlega þá sagði yfirmaður millisafnalána að lögin væru svo ströng að þau gerðu bókasöfnum ómögulegt að sinna hlutverki sínu og lýsti því yfir að hann myndi ekki fara eftir þeim. Miðað við það sem ég hef lesið um þessi lög þá er þetta hárétt hjá honum, þróun höfundarréttar síðustu 50 ár er alveg fáránleg.

Bókasafnsfræðingar eru töffarar.

Höfundarréttur og bókasöfn IV

Í febrúar 1983 var gerð könnun um útlán bóka í Bæjarbókasafninu í Keflavík, þar kom í ljós að af 190 eintökum af bókum Halldórs Laxness sem voru til voru einungis 9 útlán, af bókum Jennu og Hreiðars voru til 97 eintök en ekkert var lánað af þeim. Þetta eru einkar áhugaverðar tölur í ljósi þess að á þessum tíma fengu höfundar borgað fyrir fjölda eintaka sem voru til á söfnum en ekki fjölda útlána, greinilegt að þetta var afar ósanngjarnt kerfi.