Kleinur

Ég ákvað áðan að það væri snjallt að baka kleinur, ég bakaði síðan kleinur. Næst þegar ég baka kleinur þá mun ég hafa uppskriftina helmingi minni. Kvikmyndaklúbbsfólk fær líklega kleinur á morgun.

Leiðindi

Ég held að ég hafi áðan verið í leiðinlegasta tíma sem ég hef nokkurn tíman verið í. Síðan fékk ég einkunn fyrir hlutaprófið frá því um daginn, ég fékk miklu hærra en ég bjóst við.

Hetjan

Anne Clyde - Mynd úr FréttablaðinuHér er mynd af hetjunni minni, henni Anne Clyde prófessor í Bókasafns- og upplýsingafræði.

Myndin er tekin úr Fréttablaði gærdagsins þar sem hún er að tala um MLIS námið sem ég hef minnst oft á.

Hún er því miður ekki að kenna neitt þetta árið.

Fer næst í námskeið hjá henni eftir ár.

Hún hefur skoðað þessa síðu….