Ég er kominn með vinnu, sama stað og í fyrra, ég var reyndar mjög bjartsýnn á að það myndi losna starf hjá þeim en ég bjóst ekki við að fá jákvætt svar svona snemma. Þetta þýðir að ég verð með góðar tekjur í sumar og ég grennist væntanlega. Ég ætla síðan að kaupa mér mp3-spilara til að ég geti skemmt mér í vinnunni.
Day: 7. apríl, 2004
is eða net
Það er alltaf gaman að sjá blöðin vitna í Vantrú en við fáum varla marga heimsóknir þegar sagt er að þetta sé Vantrú.is
Ég er annars með grein í dag sem heitir Ólöglegar fermingar? og er óendanlega heillandi, ég hefði mátt rumpa henni fyrr af.
