Glaður

Nú er ég glaður. Búinn að koma miklu í verk. Ekki lengur að bjarga mér til morgundagsins heldur búinn með flest þau verkefni sem ég get unnið. Það er góð tilfinning. Gott að vera hress.

Dasaður – vaknaður

Það er einsog ég hafi verið hálfsofandi í tvær vikur, rétt haldið öllu fljótandi en í raun ekki komið neinu í verk. Núna er ég svo hress og fullur af orku að allt ætti að ganga.

Að endurtaka ekki mistökin

Hamborgarar í matinn hérna, geri ekki þau mistök aftur. Síðast þá enduðum við öll á því að éta After Eight til að eyða óbragðinu úr munninum. Núna er Agga í fríi þannig að það er alls óvíst með eftirbragðseyðinn.