
Day: 2. nóvember, 2005
Mormónsbók!
Um daginn bað ég Hjörvar að stela einni Book of Mormons fyrir mig í fyrirheitna landinu Utah. Ég hef ekki heyrt frá honum um það en ég dag fékk ég eitt stykki af bókinni. Ég fór í Þjóðmenningarhúsið og þar er einhver Utah-Vesturfarasýning og viti menn! Þeir eru að gefa bókina þar. Ég er mjög glaður. Það væri samt gaman að eiga hana á ensku líka.
Hæfileikalaus teiknimyndasöguhöfundur.
Núorðið geta allir hæfileikaleysingjar gert teiknimyndasögu þannig að ég ákvað að ég væri nógu hæfileikalaus. Sagan sjálf er nútímaútgáfa af klassísku ævintýri. Þið kannist kannski við aðalsöguhetjuna.
