Í dag var mér sagt að ég væri dúllulegur með nýju húfuna mína. Það var ekki lúkkið sem ég var að leita eftir. Það var tekið fram að þetta væri mikil breyting frá mínu venjulega útliti. Sem þýðir að án húfunnar er ég ekki dúllulegur. Stundum veit maður ekki hvað er hrós og hvað er móðgun.
Day: 30. nóvember, 2005
Saman í hring
Ég ætlaði að nýta þennan tíma í að sitja aftast og klára heimildarskrá og tilvísanir en nei. Nú sitjum við öll í hring og látum bækur ganga. Ég gleymdi að ég ætti að koma með bók.
Samt mun ég vaka
Það að vaka fram á nótt borgar sig greinilega. Nú er ég í fyrsta sinn að sjá myndbandið Má ég sparka? með félaga 7berg. Áfram með ritgerðarskrif….
