Skotlandsferð undirbúin

Maður fattar fleiri brandara eftir að hafa verið í Menningararfinum.

You know, Scotland has its own martial arts.  It’s called “ Fuck You!“ It’s mostly head-butting and kicking people on the ground.

Þetta var reyndar ekki einn þeirra.  Hins vegar hafði ég ekki áður áttað mig á því hvers vegna Charlie hafði beðið um „Robbie Burns“ herbergið.

Fjarkinn taka 2

Ég er kominn með allavega þrjú aukaklukk á þessu 4x dæmi.  Ég hef þegar lokið þessu af.  Reyndar var ég með útgáfu þar sem voru fjórar bækur sem ég gæti lesið aftur og aftur en í sumum útgáfum er það kvikmyndir.

Fjórar kvikmyndir sem ég get horft á aftur og aftur:

  • Mallrats
  • Back to the Future þrennuna
  • The Big Chill
  • Monkey Business með Marxbræðrunum

Raunar eru ótal myndir sem ég get horft á aftur og aftur.

Plönin

Ég þarf að fara að ákveða hvaða kúrsa ég tek á næstu önn.  Því miður er ekki mikið né skemmtilegt val fyrir mig.  Fátt sem er á mínu sviði.  Þeir fáu kúrsar sem henta mér eru á BA-stigi þannig að ég þarf að fara einhvers konar fimleika með þá, fá færri einingar eða gera eitthvað aukaverkefni.  Annað vandamál er að þessir kúrsar virðast allir raðast á haustönnina.  Ég sé bara einn kúrs sem er á vorönn.

Ég þarf líka vinnu.  Bæði í sumar og næsta vetur.  Það er reyndar alltaf verið að auglýsa eftir bókasafns- og upplýsingafræðingum en yfirleitt bara í fullt starf sem hentar mér ekki með náminu.  Ég þarf cirka 50% stöðu yfir veturinn.  En hvað er meira böggandi en að leita sér að sumarstarfi?  Fátt.  Það er helsti ókostur þess að halda áfram í skóla.  Ef ég fengi fullt starf í sumar við að leysa af sem myndi þróast yfir í hálft starf yfir veturinn þá yrði ég glaður.