Zelig

Ég tek ekki jafn stórt upp í mig og Ármann en Zelig er vissulega hátt á lista yfir mínar uppáhaldskvikmyndir.

Reyndar var dagskráin fyrir gærkvöldið mjög vafasöm á Skjáeinum.  Ég leit snöggt á Textavarpið og þar stóð að myndin byrjaði 22:40 (sem hentaði vel því Boston Legal var á undan).  Mig fór að gruna að eitthvað væri skakkt þegar Wanted byrjaði 22:30 (leiðindaþáttur sýnist mér).  Ég kíkti aftur á dagskránna og sá að samkvæmt henni þá væri þátturinn einungis tíu mínútna langur sem mér þótti grunsamlegt.  Ég kíkti á heimasíðu Skjáseins og þar voru skráðar tvær tímasetningar á Zelig, 22:40 og 23:15.  Það passaði hins vegar ekki við að CSI átti að vera á dagskrá um miðnætti.

Sjónavarpsstöðvar mættu vera duglegri að passa að dagskráin sé rétt skráð.

En myndin byrjaði 23:15 og ég horfði á hana þó ég þyrfti að vaka frameftir.  Horfði reyndar líka á CSI þannig að ég svaf full lítið í nótt.

Fastur í lyftu

Í morgun festist ég í lyftu, það var ekki mjög ógnvænlegt.  Ég var kominn inn, búinn að velja hæð en um leið og hún ætlaði af stað þá hoppaði hún örlítið.  Hún vildi ekki leyfa mér að fara út, upp né niður þannig að ég ýtti á bjölluna en enginn kom.  Eftir rúma mínútu hefur einhver uppi kallað á lyftuna og lyftan fór af stað.

Gsm símar hafa að mestu eyðilagt ógnina sem fylgja föstum lyftum.  Ég varð hins vegar hræddur þegar ég festist fimm ára gamall í lyftunni í Kaupfélaginu í Borgarnesi.