Seinkun á Brannon Braga

Bömmer og bögg.  Fluginu hans Brannon Braga seinkar um átta klukkutíma þannig að hann nær væntanlega ekki í Nexus í kvöld.  Planið er samt að reyna að finna annan tíma fyrir þetta ef fólkið hjá Nexus getur.

Brannon Braga…

Í kvöld verður Brannon Braga í Nexus að flytja fyrirlestur, ég held að það verði bara á Hverfisgötunni en ég er ekki alveg viss.  Brannon Braga var í innsta hring Star Trek í rúman áratug og mun ræða þau mál öll saman.  En þetta er bara upphitun fyrir ræðu hans á ráðstefnunni.

Annars eru fyrirlesararnir að fara að koma til landsins…. Ég er mjög spenntur.