Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 6. júlí 2006 klukkan 13:03

Innhólfið og verkin

Ég er akkúrat núna með fimmtán email í innhólfinu mínu sem flokkast einhvern veginn undir “opin mál”.  Þau eina sem ég á eftir að svara snúast um eftirmál ráðstefnunnar en gera má ráð fyrir að það verði klárað að mestu á næstu viku.  Voðalegt frelsi er þetta.  Verst að ég á eftir að klára eitt stykki BA-verkefni.  Síðan erum við Sigrún að leggja drögin að næsta Slæðingi.  Veit ekki hvort hann klárast jafn snemma og við vonuðum en meðritstjórinn/stýran ætlar að fara að sparka í rassa á morgun.  Ég þarf á móti að fara að undirbúa það að ganga frá peningamálunum öllum saman.

Ég á eftir að skrifa grein og líklega að taka eitt stykki viðtal.  Spurning hvort ég aðlagi Hjátrúarritgerðina sem við Jón Kristján skrifuðum (hjátrú íþróttamanna) eða hvort ég skrifi eitthvað nýtt og ferskt.  Hvort tveggja gæti verið gaman.

Fimmtudagur, 6. júlí 2006 klukkan 0:16

Ís og lesbíur

Ágætt kvöld.  Fór niður í bæ og hitti Jakob og Sverri.  Fékk mér ís með þeim.  Fór síðan með krotmyndir til Sigrúnar og horfði af einhverjum ástæðum á The L-Word með henni.