Ég náði að vinna í BA-verkefninu í dag. Er væntanlega búinn að ákveða hvernig uppsetningin verður og þarf bara að fá samþykki fyrir því. Þá er maður aðeins rólegri. Sendi þetta til Jóhönnu í næstu eftir að ég hef fengið Eygló til að yfirfara þetta.
Day: 30. júlí, 2006
Tónlistarlegt uppeldi
Í gær var ég í Skífunni og sá þá svona átta ára stelpu að skoða diska með mömmu sinni. Ég heyrði mömmu hennar segja við hana að diskurinn sem hún var að skoða væri ekki „bara með stelpulögum“. Hún rétti stelpunni síðan annan disk og sagði við hana að á honum væru stelpulög. Fyrri diskurinn sem þær voru að skoða var „Pottþétt Hinseginn“ sem er með barbídúkku/m framan á. Stelpulagadiskurinn var hins vegar Nælon. Ég get ekki sagt að þetta sé gott tónlistarlegt uppeldi. Stelpan missti meðal annars af Living on my own með Freddie, Relax með Frankie og Stanslaust stuð með Páli Óskari.
15 þúsund á Sigur Rós ?
Ég var að lesa á Mogganum að það sé búist við allt að fimmtán þúsund manns á Sigur Rós á eftir. Ég myndi giska að ef veðrið verður gott þá sé þetta vanmetið. Ætli þetta verði ekki algjört kaos?
Mynd af skipulagsnefndinni
Rakst á þessa mynd hjá Svan. Ég virðist vera risastór þarna en það væri nú töluvert öðruvísi ef Svanur og Siggi væru við hliðina á mér en ekki á hinum endanum.
