Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 2. ágúst 2006 klukkan 22:41

Dúkka

FreddieGjöf fyrir Queenaðdáandann sem á allt.  Ég hef reyndar ekki hlaupið til og keypt þetta.
Smellið á myndina til að sjá hana stærri.

Miðvikudagur, 2. ágúst 2006 klukkan 15:26

Hundstíma sóað

Hafa þjálfaðir fíkniefnaleitarhundar ekki þarfari hluti við tíma sinn að gera en leita að hassögnum hjá mótmælendum?  Var ferðin annars nokkuð líka notuð til að leita að fíkniefnum hjá verkamönnum hjá Kárahnjúkum?

Miðvikudagur, 2. ágúst 2006 klukkan 11:55

Gömul grein í Mogganum

Það er grein eftir mig í Mogganum í dag.  Ég sendi þeim hana 18. júní.  Ég sendi þeim hana aftur í síðustu viku minnir mig og þá aðeins breytta en samt setja þeir inn gömlu útgáfuna.  Set greinina, nýju útgáfuna, væntanlega á Vantrú á morgun.  Klukkan 8:30 í fyrramálið virkar þessi hlekkur.