Truflanir…

Ég var að gera forsíðu Truflunar menningarlega.  Það hafa fáir spurt hvaðan nafnið sé komið en ég mun samt svara því hér.  Ég fékk hugmyndina af því að sjá titil bókarinnar Truflanir í Vetrarbrautinni eftir Óskar Árna Óskarsson.  Ég ákvað því að það væri viðeigandi að setja upphafsorð sögunnar á forsíðuna.  Sjáum hvernig það virkar.  Annars væri það Óskari líkt að hóta mér að rukka fyrir afnotin.  Kannski ekki í fullri alvöru þó.

Un-birthday

Við Eygló skruppum ekki í afmælisveislu til Ásgeirs í gær, eða við skruppum í ekkiafmælisveislu, það er ekki alveg á hreinu.  Hittum þar mikið af góðu fólki.  Ásgeir gerði heiðarlega tilraun til að gefa fólki slímóvits eftir að nágranni hans hafði gefið fólki eitthvert svartfellskt ógeð að drekka.  En þegar Garðar Steinn hafnar áfengi þá getur maður treyst því að það sé ógeð þannig að slímóvitsið fékk að vera óáreitt uppi í skáp.

Við Eygló og Siggi horfðum á flugeldasýninguna hjá Sjóminjasafninu eftir að við vorum rekin af svölunum þar af þjóðfræðinema.

En við komum snemma heim enda bæði slöpp.

Ásgeir fékk annars eðal afmælisgjöf frá okkur, eða gjafir.  Nýju bókina hans Óskars Árna og smáskífuna Rock Me Amadeus með Falco á Vínil.  Og eitthvað áfengisógeð.   Falco var keyptur í Visby á markaði en ekki miðaldamarkaði.