Truflaði manneskja númer átta hefur bæst við. Það er hún Dagbjört vinkona mín og framhaldsnemi í þjóðfræði.
Day: 16. nóvember, 2006
Laufabrauð
Við Eygló erum að stefna að því að gera laufbrauð þann 2. desember næstkomandi. Þetta er að sjálfssögðu hópathöfn og eru því vinir og kunningjar velkomnir (hvort sem það eru forvitnir Reykvíkingar, brottfluttir Norðlendingar eða þjóðfræðingar í leit að rannsóknarefni). Látið mig vita.
Random gsm myndir
Ég náði núna að koma inn svoltið skemmtilegu kerfi hérna. Ég hafði alltaf mynd af gsm-blogginu mínu hérna uppi til hægri en það var alltaf sama myndin af því að ég þurfti að breyta handvirkt um mynd. Núna hef ég hins vegar gert þetta þannig að ég er með möppu með skemmtilegum myndum sem ég hef tekið á gsm-símamyndvélina mína og læt script sækja handahófskennda mynd úr þeirri möppu. Þessar myndir birtast núna hérna uppi til hægri. Gamangaman. Reyndar á ég vonandi eftir að stilla þetta þannig að hægt verði að fá upp síðu með öllum þessum myndum en það var ekki alveg að virka áðan.
