

Var að klára próf og þar með er ég ekki undir neinni pressu þar til ég fer ég fyrsta prófið mitt þann 12. des, síðan 13. des, síðan heimapróf 13.-15., síðan próf 18. og að lokum 20 des. Þetta ætti samt að vera þannig að ég næ að lesa fyrir allt. Þarf reyndar að koma koma mér af stað mesturinn núna strax. Ég sleppi reyndar að minnast á vikulega skammtinn af Rannsóknunum enda er það orðin rútína.
Ég er ekki lengur í stjórn Vantrúar. Ákveðin kaflaskil þarna. Gott að stjórnin losnar við einhvern sem hefur verið þarna frá upphafi. Núverandi stjórn inniheldur einungis tvo stofnmeðlimi vefritsins. Ég læt aðra um að tilkynna hvernig núverandi stjórn er skipuð, grunar að það komi mörgum á óvart 😉