Hætt saman…

Jæja, þá er Eygló búinn að upplýsa það opinberlega að við erum hætt saman. Ég held að ég vísi bara að mestu í hennar orð.

En ef þið vitið af herbergi til leigu í námundan við Háskólann þá megið þið láta mig vita (olis hjá hi.is). Helst ódýrt augljóslega og internetsamband (eða möguleiki á því) er nauðsyn. Ég er augljóslega mjög rólegur, reyki hvorki né drekk.

Saying goodbye, why is it sad?
Makes us remember the good times we’ve had
Much more to say, foolish to try
It’s time for saying goodbye.

Crossroads

Ég var að skrá mig í námskeið sem ég mun væntanlega skrá mig aftur úr. Arfleifð Deltablúsarans Robert Johnson. Ég ætla að sitja námskeiðið og lesa bækurnar en ég efast um að ég taki próf.  Sigrún verður þarna sem og Jón Kr.. En það kemur meira á óvart að Sverrir og Snabbi Guðmundssynir eru skráðir þarna líka.

Ég held annars að það sé óhætt að mæla þessu námskeiði fyrir tónlistaráhugamenn.  Get ímyndað mér að þónokkra lesendur mína langi að kíkja.  Skráið ykkur! Námskeiðsnúmerið er 10.10.73.  Námskeiðið er kennt á 3-4 dögum núna í janúar af gistikennara.