Tommi frændi skýtur framhjá

Tommi frændi ætlar að skjóta á Háskólalistans og heldur ranglega fram að okkur hafi mistekist að manna framboðslista til Háskólafundar.  Það er bara rangt og sannleikurinn er sá að okkur hefur aldrei mistekist að manna þá lista sem við höfum ætlað að bjóða fram.  Fyrsta árið sem Háskólalistinn bauð fram þá var framboðslisti til Háskólafundar en eftir það var ákveðið að sleppa því þar sem við viljum að fulltrúar séu skipaðir á þennan vettvang.  Háskólafundir eru þemafundir og það væri best að skipa í hvert sinn fulltrúa sem þekkja til þeirra mála sem þar eru til umræðu.  Þegar ég fór fyrst fram þá var einu sinni nefndur sá möguleiki að bjóða fram til Háskólafundar en það var fellt og það tengdist ekki á nokkurn hátt því hvort við gætum mannað lista eður ei.

Ég geri að sjálfssögðu ráð fyrir að Tommi frændi sé að gera heiðarleg mistök og leiðrétti sig.  Annað væri náttúrulega bara óheiðarlegt.

Ríka fólkið og peningar þeirra

Ég verð að segja að mér er töluvert mikið sama um það hvort að ríka fólkið fær fræga tónlistarmenn til að spila í veislunum sínum.  Þetta er bara ekki á áhugasviði mínu.  Síðan finnst mér að maður sem eyðir milljarð í góðgerðastarf megi alveg spandera slatta í sjálfan sig líka.  Ég væri líka alveg til í að fá Brian May og Roger Taylor til að spila í afmælinu mínu ef ég hefði efni á því.  Myndi jafnvel láta verða af því.

Háskólalistinn 2007

Ég veit að allir eru spenntir að sjá framboðslista Háskólalistans til Stúdentaráðs 2007.  Hann má finna hér.

Undirritaður er í 17. sæti sem er annað heiðurssæti listans. Af skondinni tilviljun er Bryndís vinkona mín í 17. sæti Röskvulistans.  Ég held að MA-nemar í þjóðfræði ættu á næsta ári að gera kröfu um að eiga 17. sætið á öllum listunum.

Til að ég þurfi ekki að vinna

Son House var, eins og ég hef áður sagt, predikari áður en hann varð blúsari.

Yes, I’m gonna get me religion, I’m gonna join the Baptist Church.

Yes, I’m gonna get me religion, I’m gonna join the Baptist Church.

You know I wanna be a Baptist preacher, just so I won’t have to work.

Góður.

Hittingur kvöldsins

Tuttugu manns mættu á Vantrúarhitting kvöldsins.  Gríðarlegt fjör og stuð.  Spurning hvað afgreiðslustúlkunum fannst um umræðurnar.  Hlakka til að sjá hópmyndina sem við tókum.