Egill Helgason hringdi í mig

Egill Helgason er ekki hrifinn af því að fólk leiðrétti rangfærslur hans. Í dag er hann búinn að eyða bæði svari frá mér og Matta við nýjasta pistill sinn. Ég ákvað að prufa að senda athugasemdina aftur en aftur var henni eytt. Í þriðja skiptið var ekki nóg að athugasemdinni væri eytt heldur fékk ég símtal frá Agli Helgasyni. Egill var frekar æstur en ég skal reyna að koma með nokkra punkta úr samtalinu.

  • Ef ég kommenta aftur þá lætur hann loka fyrir IP-töluna mína.
  • Enginn frá Vantrú má kommenta á greinar hjá honum.
  • Jón Torfason er gáfaðri/merkilegri en ég af því að hann er úr sveit, er gamall og heitir ekki asnalegu nafni!
  • Egill játaði að vera alveg sama Vinaleið en er bara að tala um hana til þess að æsa andstæðinga hennar upp.
  • Við á Vantrú erum vitlausir að láta hann æsa okkur upp.

Hann skellti á um það bil þegar ég fékk hláturskast úr af sveitamannakommentinu. Kannski að ég sendi Eygló að tala við hann næst. Hún er úr sveit og þess vegna er hún ákaflega gáfuð. Þar að auki heitir hún svona klassísku nafni. Það er ekki alveg jafn flott og Jón en það ætti að duga.

Reyndar sendi Egill síðan sms og baðst afsökunnar á því að hafa verið dónalegur við mig.

  1. “Enginn frá Vantrú má kommenta á greinar hjá honum.”

    Hmm, eru hann og Séra Örn Bárður kunningjar? :-)

  2. Spurning hvort hann geti ekki líka ruglað útsendinguna á þættinum sínum heima hjá ykkur hættulegu trúleysingjunum?

  3. Ég skellti upp úr. Svo hér er eitt af fáum viðeigandi skiptum fyrir þetta hér: LOL

  4. Spurning hver er að æsa hvern upp hér. Agli er svo uppsigað við Vantrú að félagið er einfaldlega bannað á síðunni hans fyrir óæskilegar skoðanir.

  5. Holy hell segi ég nú bara! Óli minn, þú hefur alveg sérstakt lag (að því er virðist) á að æsa fólk upp svo mikið að það verður sjálfum sér til skammar…ég myndi kjósa þig á þing!

  6. Eins og ég segi, ég held að Egill Helga sé orðinn að netlöggunni hans Steingríms

  7. Hann skirrist hins vegar ekki við að gera grín að erlendum þjóðhöfðingjum í síðasta pistlinum sínum. Það varðar við lög og er álíka afbrot og efast um sakramentisins staðhæfing og innihald. Það er ekki gaman að sjá fólk æsa sömu drullu og það skammar aðra fyrir.

  8. Nei, Egill er bara aðstoðar, Denni sjálfur er netlöggan …

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>